Vinnuréttar- og starfsmannamál

LEX hefur á að skipa reyndum sérfræðingum á sviði vinnuréttar og opinbers starfsmannaréttar. LEX getur veitt alhliða ráðgjöf á þessum viðkvæmu réttarsviðum með skömmum fyrirvara, enda þarf oft að bregðast skjótt við þegar upp koma álitamál sem eiga hér undir.

Sérhæfð þekking og reynsla
LEX hefur á að skipa reyndum sérfræðingum á sviði vinnuréttar og opinbers starfsmannaréttar og veitir alhliða ráðgjöf á þessum réttarsviðum, svo sem gerð ráðningarsamninga við lykilstarfsmenn og sniðmát að ráðningarsamningum við almenna starfsmenn. Lögmenn LEX hafa veitt fyrirtækjum og opinberum aðilum ráðgjöf á þessum réttarsviðum, sem og rekið ágreiningsmál fyrir dómstólum, bæði í héraði og fyrir Hæstarétti.
Sérfræðingar LEX eru vel í stakk búnir til að veita alhliða ráðgjöf á þessum viðkvæmu réttarsviðum með skömmum fyrirvara, enda getur þurft að bregðast skjótt við þegar upp koma ágreiningsmál á þessum sviðum. Þá hafa lögmenn LEX mikla reynslu af því að sætta ágreiningsmál sem hér undir heyra en með því að leggja áherslu á að leysa viðkvæman ágreining á þessum sviðum með samkomulagi leitast LEX við að tryggja að viðskiptavinir þeirra fái sem farsælasta niðurstöðu eins skjótt og unnt er.
Við veitum stjórnum fyrirtækja sérhæfða ráðgjöf um ráðningu og uppsögn lykilstarfsmanna, auk þess að aðstoða lykilstarfsmenn sjálfa við ráðningarferli og starfslok. Þá veitum við fyrirtækja ráðgjöf um túlkun og framkvæmd kjarasamninga og ráðningarsamninga fyrir almenna starfsmenn.