Fréttir
LEX mun birta hér öðru hverju fréttir af málefnum stofunnar og starfsmönnum hennar, auk auglýsinga um útgáfu efnis frá LEX
Fréttir
ÚTGÁFA
LEX lögmannsstofa leggur áherslu á að viðskiptavinir njóti þjónustu sérhæfðra starfsmanna eftir því sem viðkomandi verkefni kallar á. Slíkt tryggir ekki aðeins fyrsta flokks ráðgjöf handa viðskiptavinum okkar heldur tryggir það einnig að þjónustan sé eins hagkvæm og kostur er. Þá starfa reyndir málflytjendur fyrir dómsstólum landsins á öllum fagsviðum LEX.
Vernd uppljóstrara
29. desember, 2020Lára Herborg Ólafsdóttir, lögmaður og eigandi á LEX skrifaði grein í ViðskiptaMoggann þann 23. desember sl. sem fjallar um vernd uppljóstrara en ný lög nr. 40/2020 taka gildi nú um áramót sem ætlað er að vernda alla starfsmenn, opinbera og aðra, sem greina frá upplýsingum eða miðla gögnum í góðri trú um brot á lögum eða aðra ámælisverða háttsemi í starfsemi vinnuveitanda þeirra. Lögin skylda fyrirtæki með 50 starfsmenn eða fleiri m.a. til að setja skýrar verklagsreglur þar að lútandi.
Aftur í fréttasafn