Fréttir
LEX mun birta hér öðru hverju fréttir af málefnum stofunnar og starfsmönnum hennar, auk auglýsinga um útgáfu efnis frá LEX
Fréttir
ÚTGÁFA
LEX lögmannsstofa leggur áherslu á að viðskiptavinir njóti þjónustu sérhæfðra starfsmanna eftir því sem viðkomandi verkefni kallar á. Slíkt tryggir ekki aðeins fyrsta flokks ráðgjöf handa viðskiptavinum okkar heldur tryggir það einnig að þjónustan sé eins hagkvæm og kostur er. Þá starfa reyndir málflytjendur fyrir dómsstólum landsins á öllum fagsviðum LEX.
Út fyrir rammann
24. febrúar, 2021Lára Herborg Ólafsdóttir, lögmaður og eigandi á LEX skrifaði grein í Viðskiptamoggann í dag um rammasamninga, sem eru ein leið til að bjóða út margvísleg innkaup opinberra aðila samtímis. Við gerð einstakra samninga um vörur, verka eða þjónustu á grundvelli rammasamnings er óheimilt að gera verulegar breytingar á skilmálum hans. Þó getur verið heimilt að breyta samningi og rammasamningi án þess að hefja nýtt innkaupaferli, í afmörkuðum lögbundnum tilvikum, sbr. 90. gr. laga um opinber innkaup og fer Lára Herborg yfir þessar undantekningar í greininni.
Aftur í fréttasafn