Sjálfbærni / ESG (Environment, Social, Governance)
Sjálfbærni eða „ESG“ vísar almennt til þess að samþætta umhverfismál, félagslega þætti og góða stjórnarhætti að starfsemi fyrirtækja eftir viðurkenndum viðmiðum. LEX hefur innan sinna raða sérfræðinga með reynslu og þekkingu á ráðgjöf í sjálfbærni og getur aðstoðað viðskiptavini sína við að undirbúa sig fyrir auknar kröfur og leita nýrra tækifæra.
Sjálfbærni / ESG (Environment, Social, Governance)
Sjálfbærni eða „ESG“ (UFS eins og það hefur verið þýtt á íslensku) vísar almennt til þess að samþætta umhverfismál, félagslega þætti og góða stjórnarhætti í starfsemi fyrirtækja eftir viðurkenndum viðmiðum. Samkeppnishæfni fyrirtækja getur ráðist af því hversu vel aðilar standa sig í þessum efnum, ekki eingöngu vegna lögbundinna krafna, heldur líka vegna þeirra krafna sem hagaðilar, t.d. birgjar, viðskiptavinir og fjárfestar gera til sinna samstarfsaðila um ábyrga starfsemi. Í dag þurfa fyrirtæki og fjárfestar að þekkja og greina áhrif sín á umhverfi og samfélag, nota til þess viðurkenndar aðferðir og gera grein fyrir þeim með gagnsæjum hætti. Markviss vinna er til lengri tíma litið til þess fallin að hafa áhrif á samkeppnishæfni þeirra á tímum loftslagsbreytinga og aukins aðgangs að upplýsingum.
Nýjar kröfur til fyrirtækja á þessu sviði eru að aukast og flest vilja þau standa undir slíkum kröfum. Fyrirtæki þurfa að þekkja helstu áhættur sínar á sviði sjálfbærni og geta gert grein fyrir hvernig þau takast á við þær. Fjárfestar vilja fá skýrar og viðeigandi upplýsingar um frammistöðu fyrirtækja í þessum efnum þar sem viðurkenndum aðferðum er beitt. LEX hefur innan sinna raða sérfræðinga með reynslu og þekkingu á ráðgjöf í sjálfbærni og getur aðstoðað viðskiptavini sína við að undirbúa sig fyrir auknar kröfur og leita nýrra tækifæra. Við notum viðurkennd viðmiðum (m.a. Global Reporting Initiative (GRI) og Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna) auk þess að veita viðskiptavinum ráðgjöf við að bregðast við nýjum lagakröfum, t.d. flokkunarkerfi ESB (EU taxonomy), nýja staðla ESB í sjálfbærniupplýsingagjöf (ESRS) og áreiðanleikakönnun á sjálfbærni fyrirtækja (CSDDD).
Evrópusambandið samþykkti árið 2019 Græna evrópska sáttmálann sem hefur að markmiði að ESB verði kolefnishlutlaust árið 2050. Til að ná þessu markmiði vinnur sambandið nú að fjölda verkefna sem miða að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og aðlögun Evrópu að loftslagsbreytingum. Unnið er markvisst að fjölda lagabreytinga, m.a. á sviði orkumála, samgöngumála, sjálfbærni byggingaframkvæmda, hringrásarhagkerfis, líffræðilegs fjölbreytileika og umhverfismála. Lagabreytingarnar hafa áhrif á starfsumhverfi flestra fyrirtækja með beinum og óbeinum hætti. Við höfum veitt fyrirtækjum ráðgjöf við undirbúning og innleiðingu eftirtaldra laga og reglna:
- Flokkunarkerfi ESB fyrir sjálfbærar fjárfestingar (EU Taxonomy Regulation) og undirgerðir þess um loftslag (EU Taxonomy Climate Delegated Act) o.fl.)
- Reglugerð um upplýsingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu (SFDR)
- Tilskipun um sjálfbærniupplýsingagjöf fyrirtækja (CSRD)
- Drög að tilskipun um áreiðanleikakönnun á sjálfbærni fyrirtækja (CSDDD)
Meðal verkefna LEX á þessu sviði eru:
- Ráðgjöf í mótun og innleiðingu stefnu á sviði sjálfbærni / ESG og ábyrgum fjárfestingum
- Undirbúningur við að mæta nýjum lagakröfum á sviði sjálfbærni
- Upplýsingagjöf í samræmi við flokkunarkerfi ESB
- Ófjárhagsleg upplýsingagjöf fyrirtækja og ráðgjöf við notkun staðla og viðmiða við ársreiknings- og ársskýrslugerð
- Birgjareglur/siðareglur birgja og innleiðing birgjamats
- Gerð og uppfærsla siðareglna og innleiðing þeirra
- Hagaðilagreiningar
- Mikilvægisgreiningar
- Málarekstur fyrir stjórnvöldum vegna markaðssetningar og framsetningu upplýsinga um eiginleika vöru
- Samskipti við fjárfesta og fyrirtæki vegna upplýsingagjafar
- Grænar lánveitingar og önnur sjálfbærnifjármögnun
Starfssvið
LEX lögmannsstofa leggur áherslu á að viðskiptavinir njóti þjónustu sérhæfðra starfsmanna eftir því sem viðkomandi verkefni kallar á. Slíkt tryggir ekki aðeins fyrsta flokks ráðgjöf handa viðskiptavinum okkar heldur tryggir það einnig að þjónustan sé eins hagkvæm og kostur er. Þá starfa reyndir málflytjendur fyrir dómsstólum landsins á öllum fagsviðum LEX.
Starfssvið
- Málflutningur og gerðarmeðferð
- Persónuvernd og upplýsingatækni
- Samkeppnisréttur
- Sjálfbærni / ESG (Environment, Social, Governance)
- Skaðabætur og vátryggingar
- Skattamál
- Stjórnskipunarréttur og mannréttindi
- Stjórnsýsla, opinberir aðilar og skipulagsmál
- Verktakar, útboðsmál og opinber innkaup
- Vinnuréttar- og starfsmannamál
- Yfirtökur og samrunar (M&A)