Fasteignakauparéttur
Lögmenn LEX hafa umtalsverða reynslu af því annast hagsmunagæslu fyrir bæði seljendur og kaupendur í fasteignakaupum vegna vanefnda samkvæmt lögum nr. 40/2002 um fasteignakaup, s.s. vegna galla og greiðsludráttar.
Fasteignakauparéttur
Lögmenn LEX hafa umtalsverða reynslu af því annast hagsmunagæslu fyrir bæði seljendur og kaupendur í fasteignakaupum vegna vanefnda samkvæmt lögum nr. 40/2002 um fasteignakaup, s.s. vegna galla og greiðsludráttar. Við sölu fasteigna getur einnig reynt á skaðabótaábyrgð löggiltra fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa, en á þeim hvíla víðtækar skyldur m.a. varðandi söluyfirlit og upplýsingaöflun.
Þá hafa lögmenn LEX í gegnum tíðina rekið mjög umfangsmikil mál fyrir kaupendur og húsfélög vegna margvíslegra galla á séreignum og sameignum í nýbyggðum fjöleignarhúsum. Í þessum málum hefur bæði reynt á ábyrgð seljenda samkvæmt lögum nr. 40/2002, sem og skaðabótaábyrgð byggingarstjóra, hönnuða og iðnmeistara. Í málum af þessum toga getur verið sá möguleiki fyrir hendi að hafa uppi fjárkröfur in solidum á hendur framangreindum aðilum, auk þess að gera kröfu í lögboðnar starfsábyrgðartryggingar löggiltra fasteignasala, byggingarstjóra og hönnuða hjá vátryggingafélögum.
Fasteignakaup eru umfangsmiklar fjárfestingar og miklir hagsmunir fólgnir í því að vel takist til. Lögmenn LEX hafa víðtæka þekkingu á öllum þeim lagaúrræðum sem hægt er að beita vegna vanefnda í fasteignakaupum og skaðabótaskyldrar háttsemi af hálfu löggiltra fasteignasala og fagaðila sem koma að húsbyggingum.
Helstu verkefni:
- Hagsmunagæsla fyrir kaupendur og seljendur fasteigna vegna vanefnda samkvæmt lögum nr. 40/2002, s.s. vegna galla, afhendingardráttar, greiðsludráttar o.fl.
- Hagsmunagæsla vegna skaðabótaábyrgðar löggiltrar fasteignasala
- Hagsmunagæsla vegna skaðabótaábyrgðar fagaðila sem koma að húsbyggingum, einkum byggingarstjóra, hönnuða og iðnmeistara
- Hagsmunagæsla gagnvart vátryggingafélögum vegna lögboðinna starfsábyrgðartrygginga löggiltra fasteignasala og fagaðila sem kom að húsbyggingum
Með sérþekkingu á þessu sviði.
-
Arnar Þór Stefánsson
Lögmaður - Eigandi
-
Birgir Már Björnsson
Lögmaður - Eigandi
-
Garðar Víðir Gunnarsson
Lögmaður, LL.M. - Eigandi
-
Óskar Sigurðsson
Lögmaður - Eigandi
-
Stefán Orri Ólafsson
Lögmaður - Eigandi
-
Þórhallur Bergmann
Lögmaður - Eigandi
Fréttir
Starfssvið
LEX lögmannsstofa leggur áherslu á að viðskiptavinir njóti þjónustu sérhæfðra starfsmanna eftir því sem viðkomandi verkefni kallar á. Slíkt tryggir ekki aðeins fyrsta flokks ráðgjöf handa viðskiptavinum okkar heldur tryggir það einnig að þjónustan sé eins hagkvæm og kostur er. Þá starfa reyndir málflytjendur fyrir dómsstólum landsins á öllum fagsviðum LEX.
Starfssvið
- Málflutningur og gerðarmeðferð
- Persónuvernd og upplýsingatækni
- Samkeppnisréttur
- Sjálfbærni / ESG (Environment, Social, Governance)
- Skaðabætur og vátryggingar
- Skattamál
- Stjórnskipunarréttur og mannréttindi
- Stjórnsýsla, opinberir aðilar og skipulagsmál
- Verktakar, útboðsmál og opinber innkaup
- Vinnuréttar- og starfsmannamál
- Yfirtökur og samrunar (M&A)