Eignaréttur
Á LEX starfa margir af fremstu sérfræðingum landsins á sviði eignaréttar. LEX hefur veitt einstaklingum, fyrirtækjum og opinberum aðilum ráðgjöf á sviðinu, ásamt því að hafa rekið fjölmörg dómsmál er undir það falla.
Eignaréttur
Á LEX starfa margir af fremstu sérfræðingum landsins á sviði eignaréttar. LEX hefur veitt einstaklingum, fyrirtækjum og opinberum aðilum ráðgjöf á sviðinu, ásamt því að hafa rekið fjölmörg dómsmál er undir það falla. Lögmenn LEX hafa til að mynda víðtæka reynslu af rekstri mála er varða deilur um landamerki, hagnýtingu náttúruauðlinda, nábýlisrétt, skipulagsmál, auk mála á sviði verktaka- og útboðsréttar, fasteignakauparéttar sem og hugverka- og auðkennaréttar. Þá hafa lögmenn LEX sinnt fræðaskrifum um eignarétt og komið að útgáfu kennslu- og fræðirita á sviðinu.
Sérfræðingar LEX hafa aukinheldur komið að fjölmörgum málum er falla undir gildissvið laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, nr. 58/1998, bæði fyrir Óbyggðanefnd sem og dómstólum.
Helstu verkefni
- Ráðgjöf til einstaklinga og fyrirtækja um túlkun og beitingu forkaupsréttar
- Ráðgjöf til einstaklinga, fyrirtækja og opinberra aðila vegna bygginga- og skipulagsmála
- Ráðgjöf til erlendra aðila vegna umsvifa þeirra hér á landi
- Ráðgjöf til húsfélaga og annarra aðila um lög um fjöleignarhús, nr. 26/1994.
- Rekstur ágreiningsmála um landamerki
- Rekstur ágreiningsmála um hagnýtingu hverskonar óbeinna eignarréttinda
- Rekstur ágreiningsmála á sviði nábýlisréttar
- Hagsmunagæsla í tengslum við störf Óbyggðanefndar
Með sérþekkingu á þessu sviði.
-
Arnar Þór Stefánsson
Lögmaður - Eigandi
-
Guðjón Ármannsson
Lögmaður - Eigandi
-
Lilja Jónasdóttir
Lögmaður - Eigandi
-
Óskar Sigurðsson
Lögmaður - Eigandi
-
Þórhallur Bergmann
Lögmaður - Eigandi
Fréttir
Starfssvið
LEX lögmannsstofa leggur áherslu á að viðskiptavinir njóti þjónustu sérhæfðra starfsmanna eftir því sem viðkomandi verkefni kallar á. Slíkt tryggir ekki aðeins fyrsta flokks ráðgjöf handa viðskiptavinum okkar heldur tryggir það einnig að þjónustan sé eins hagkvæm og kostur er. Þá starfa reyndir málflytjendur fyrir dómsstólum landsins á öllum fagsviðum LEX.
Starfssvið
- Málflutningur og gerðarmeðferð
- Persónuvernd og upplýsingatækni
- Samkeppnisréttur
- Sjálfbærni / ESG (Environment, Social, Governance)
- Skaðabætur og vátryggingar
- Skattamál
- Stjórnskipunarréttur og mannréttindi
- Stjórnsýsla, opinberir aðilar og skipulagsmál
- Verktakar, útboðsmál og opinber innkaup
- Vinnuréttar- og starfsmannamál
- Yfirtökur og samrunar (M&A)