Fréttir
LEX mun birta hér öðru hverju fréttir af málefnum stofunnar og starfsmönnum hennar, auk auglýsinga um útgáfu efnis frá LEX
Fréttir
ÚTGÁFA
LEX lögmannsstofa leggur áherslu á að viðskiptavinir njóti þjónustu sérhæfðra starfsmanna eftir því sem viðkomandi verkefni kallar á. Slíkt tryggir ekki aðeins fyrsta flokks ráðgjöf handa viðskiptavinum okkar heldur tryggir það einnig að þjónustan sé eins hagkvæm og kostur er. Þá starfa reyndir málflytjendur fyrir dómsstólum landsins á öllum fagsviðum LEX.
LEX metin sem lögmannsstofa í hæsta gæðaflokki af IFLR1000
13. október, 2020Fyrirtækið IFLR1000 metur lögmenn og lögmannsstofur á alþjóðavísu. Nýverið gáfu þeir út þrítugustu útgáfu matsins og þar er LEX metið í hæsta gæðaflokki (Tier 1), bæði í flokknum „Fjármálaréttur og fyrirtækjalögfræði“ (Financial and corporate) og „Verkefnaþróun“ (Project development).
Þeir Ólafur Haraldsson, Stefán Orri Ólafsson og Guðmundur Ingvi Sigurðsson fá viðurkenninguna „Mikils metinn“ (Highly regarded) í þessu nýjasta mati, Gunnar Viðar er jafnframt með nafnbótina „Eftirtektarverður lögmaður“ (Notable practisioner) fyrir árið 2020. Þeir eru allir lögmenn og eigendur á LEX.
Aftur í fréttasafn