Fréttir
LEX mun birta hér öðru hverju fréttir af málefnum stofunnar og starfsmönnum hennar, auk auglýsinga um útgáfu efnis frá LEX
Fréttir
ÚTGÁFA
LEX lögmannsstofa leggur áherslu á að viðskiptavinir njóti þjónustu sérhæfðra starfsmanna eftir því sem viðkomandi verkefni kallar á. Slíkt tryggir ekki aðeins fyrsta flokks ráðgjöf handa viðskiptavinum okkar heldur tryggir það einnig að þjónustan sé eins hagkvæm og kostur er. Þá starfa reyndir málflytjendur fyrir dómsstólum landsins á öllum fagsviðum LEX.
Greiðslustöðvun – mikilvægt lagaúrræði á óvissutímum
1. apríl, 2020Grein eftir Þórhall Bergmann, eiganda á LEX, birtist í dag í Markaðnum – fylgiriti Fréttablaðsins. Þórhallur fjallar þar um greiðslustöðvun, en það er úrræði skuldara, sem á í verulegum fjárhagsörðugleikum, til að koma nýrri skipan á fjármál sín. Við þær aðstæður sem eru nú í samfélaginu verða mörg fyrirtæki fyrir tekjuskerðingu og getur þetta úrræði, sem fjallað er um í lögum nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl., gagnast fyrirtækjum við þessar aðstæður.
Aftur í fréttasafn