Fréttir
LEX mun birta hér öðru hverju fréttir af málefnum stofunnar og starfsmönnum hennar, auk auglýsinga um útgáfu efnis frá LEX
Fréttir
ÚTGÁFA
LEX lögmannsstofa leggur áherslu á að viðskiptavinir njóti þjónustu sérhæfðra starfsmanna eftir því sem viðkomandi verkefni kallar á. Slíkt tryggir ekki aðeins fyrsta flokks ráðgjöf handa viðskiptavinum okkar heldur tryggir það einnig að þjónustan sé eins hagkvæm og kostur er. Þá starfa reyndir málflytjendur fyrir dómsstólum landsins á öllum fagsviðum LEX.
Fyrstu íslensku hreyfimerkin
15. apríl, 2021Í Hugverkatíðindum fyrir aprílmánuð 2021 birtust fyrstu íslensku hreyfimerkin sem samþykkt hafa verið til skráningar hjá Hugverkastofunni. Hreyfimerki eru dæmi um svokölluð óhefðbundin vörumerki, en með breytingu á vörumerkjalögum sem tóku gildi þann 1. September 2020 var opnað fyrir skráningu á slíkum vörumerkjum. Líkt og nafnið bendir til fela hreyfimerki í sér hreyfingu eða breytingu á staðsetningu tiltekinna tákna í merki.
Tvö landsbundin hreyfimerki eru birt í nýjustu Hugverkatíðindum og í báðum tilvikum sá GH Sigurgeirsson ehf., dótturfélag LEX á sviði hugverkaréttar, um skráningu merkjanna. Annað merkjanna er jafnframt í eigu íslensks aðila og þar af leiðandi eitt fyrsta, ef ekki hið fyrsta, óhefðbundna landsbundna vörumerkið í eigu íslensks aðila sem birt hefur verið hér á landi. Um er að ræða hreyfimerki fyrir eitt vinsælasta hlaðvarp landsins, DR. FOOTBALL.
Aftur í fréttasafn