Fréttir
LEX mun birta hér öðru hverju fréttir af málefnum stofunnar og starfsmönnum hennar, auk auglýsinga um útgáfu efnis frá LEX
Fréttir
ÚTGÁFA
LEX lögmannsstofa leggur áherslu á að viðskiptavinir njóti þjónustu sérhæfðra starfsmanna eftir því sem viðkomandi verkefni kallar á. Slíkt tryggir ekki aðeins fyrsta flokks ráðgjöf handa viðskiptavinum okkar heldur tryggir það einnig að þjónustan sé eins hagkvæm og kostur er. Þá starfa reyndir málflytjendur fyrir dómsstólum landsins á öllum fagsviðum LEX.
Fjármál sveitarfélaga
17. maí, 2023Birgir Már Björnsson, lögmaður og eigandi á LEX birti nýverið grein í Viðskiptamogganum í tilefni af umræðu um bága fjárhagsstöðu sveitarfélaga. Í greininni fjallar hann um regluverkið sem gildir við slíkar aðstæður og þau úrræði sem standa til boða. Sérstaklega er mælt fyrir um í sveitarstjórnarlögum að sveitarfélög verði ekki tekin til gjaldþrotaskipta og að ekki verði gerð aðför í þeim eignum sveitarfélaga sem nauðsynlegar eru til framkvæmda á lögbundnum verkefnum.
Aftur í fréttasafn