Category: Fréttir

Birting afkomuviðvarana

Stefán Orri Ólafsson, eigandi og lögmaður á LEX birti grein í Innherja fyrr í vikunni um þann vanda sem skráð félög standa oft frammi fyrir við mat á því hvort nauðsynlegt sé að birta sérstaka afkomuviðvörun milli reglulegra uppgjörstilkynninga

Fjölmiðlafrelsi og miðlun innherjaupplýsinga

Kristinn Ingi Jónsson, lögfræðingur og fulltrúi á LEX skrifaði nýlega grein í Innherja, viðskiptamiðil Vísis, um samspil fjölmiðlafrelsis og miðlunar innherjaupplýsinga og rétt blaðamanna til þess að miðla innherjaupplýsingum í því skyni að staðreyna sannleiksgildi orðróms.

Skál í sýndar-kampavíni

María Kristjánsdóttir, lögmaður og fulltrúi á LEX og framkvæmdastjóri GH Sigurgeirsson IP skrifaði grein í Innherja, viðskiptamiðil Vísi, um metaverse útfrá sjónarhóli vörumerkjaréttarins og þeirri þörf að huga að fullnægjandi vernd vörumerkja og annarra hugverkaréttinda samhliða notkun þeirra á þessum nýja vettvangi.

Brot gegn persónuverndarlögum misnotkun á markaðsráðandi stöðu?

Benedikta Haraldsdóttir, lögmaður og fulltrúi á LEX skrifaði grein á Vísi sem birt var þann 17. okt sl. um áhugaverða þróun á vettvangi Evrópusambandsins um samspil persónuverndarréttar og samkeppnisréttar. Aðallögsögumaður Evrópudómstólsins hefur gefið út lögfræðilegt álit í máli Meta gegn þýska samkeppniseftirlitinu sem gæti haft í för með sér víkkað valdsvið samkeppnisyfirvalda til þess að… Read more »

LEX veitir Ardian lögfræðilega ráðgjöf við kaup á Mílu

LEX veitti franska sjóðastýringarfyrirtækinu Ardian lögfræðilega ráðgjöf við kaup á öllu hlutafé í fjarskiptafélaginu Mílu ehf. Ráðgjöf lögmannsstofunnar laut meðal annars að gerð áreiðanleikakönnunar, aðstoð við gerð kaupsamnings, fjármögnunarsamninga og samninga við meðfjárfesta, gerð samrunatilkynningar og sáttaviðræðum við samkeppnisyfirvöld og viðræðum við íslensk stjórnvöld. Viðskiptin eru þau stærstu á Íslandi í fimmtán ár. Míla ehf…. Read more »

Lagadagurinn 2022

Lagadagurinn verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordic föstudaginn 23. september nk. Það eru Lögmannafélag Íslands, Lögfræðingafélag Íslands og Dómarafélag Íslands sem standa fyrir Lagadeginum. Dagskráin er fjölbreytt að vanda og verða haldnar málstofur um: I. Dómskerfið II. Sjálfbærni og loftslagsbreytingar III. Opinber störf IV. Réttarvörslukerfið á tímum samfélagsbreytinga V. Útlendingaréttur VI. Fjármálalögfræði Dagskrá – Lagadagurinn… Read more »

„Highly Regarded“ – IFLR1000

Ólafur Haraldsson, Stefán Orri Ólafsson og Guðmundur Ingvi Sigurðsson, lögmenn og eigendur á LEX, fá allir viðurkenninguna „Highly regarded“ í nýjasta mati IFLR1000, fyrirtæki sem metur lögmenn og lögmannsstofur á alþjóðavísu.

LEX metin sem lögmannsstofa í hæsta gæðaflokki af IFLR1000

Fyrirtækið IFLR1000 metur lögmenn og lögmannsstofur á alþjóðavísu. Nýverið gaf fyrirtækið út nýjasta matið og þar er LEX metið í hæsta gæðaflokki (Tier 1), bæði í flokknum „Fjármál og fyrirtæki“ (Financial and Corporate) og „Verkefnaþróun“ (Project development).

Regluvæðing villta vestursins

Í Viðskipta Mogganum í dag birtist grein eftir Láru Herborgu Ólafsdóttur, lögmann og eiganda á LEX þar sem hún fjallar um svokallaðar sýndareignir (e. Crypto assets) og fyrirhugað samevrópskt regluverk um slíkar sýndareignir (e. MiCA), sem ætlað er að setja og samræma heildarreglur um sýndareignir innan EES-svæðisins.  Fyrirhugað regluverk kemur til með að setja ýmsar… Read more »

Lagaumhverfi sjálfbærni í mótun

Eva Margrét Ævarsdóttir lögmaður, sem leiðir ráðgjöf í sjálfbærni á LEX fjallar í nýjasta tölublaði Lögmannablaðsins um nokkra þætti sjálfbærni, m.a. um umgjörðina um sjálfbærnivinnu og samræmingu staðla á því sviði, græna sáttmála ESB og fyrirhugaðar lagabreytingar í tengslum við hann sem munu verða innleiddar hér á landi, hættuna á grænþvotti og aukna áherslu eftirlitsaðila… Read more »