Fréttir
LEX mun birta hér öðru hverju fréttir af málefnum stofunnar og starfsmönnum hennar, auk auglýsinga um útgáfu efnis frá LEX
Fréttir
ÚTGÁFA
LEX lögmannsstofa leggur áherslu á að viðskiptavinir njóti þjónustu sérhæfðra starfsmanna eftir því sem viðkomandi verkefni kallar á. Slíkt tryggir ekki aðeins fyrsta flokks ráðgjöf handa viðskiptavinum okkar heldur tryggir það einnig að þjónustan sé eins hagkvæm og kostur er. Þá starfa reyndir málflytjendur fyrir dómsstólum landsins á öllum fagsviðum LEX.
Brot gegn persónuverndarlögum misnotkun á markaðsráðandi stöðu?
18. október, 2022Benedikta Haraldsdóttir, lögmaður og fulltrúi á LEX skrifaði grein á Vísi sem birt var þann 17. okt sl. um áhugaverða þróun á vettvangi Evrópusambandsins um samspil persónuverndarréttar og samkeppnisréttar.
Aðallögsögumaður Evrópudómstólsins hefur gefið út lögfræðilegt álit í máli Meta gegn þýska samkeppniseftirlitinu sem gæti haft í för með sér víkkað valdsvið samkeppnisyfirvalda til þess að leggja mat á lykilálitaefni á sviði persónuverndarréttar.
Gildi samþykkis fyrir umfangsmikilli vinnslu persónuupplýsinga tæknirisa á stafræna markaðinum er framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ofarlega í huga og er það meðal þeirra álitaefna sem reglugerðin Digital Markets Act, sem tekur gildi nk. nóvember í Evrópusambandinu, er ætlað að taka á.
Aftur í fréttasafn