Fréttir
LEX mun birta hér öðru hverju fréttir af málefnum stofunnar og starfsmönnum hennar, auk auglýsinga um útgáfu efnis frá LEX
Fréttir
ÚTGÁFA
LEX lögmannsstofa leggur áherslu á að viðskiptavinir njóti þjónustu sérhæfðra starfsmanna eftir því sem viðkomandi verkefni kallar á. Slíkt tryggir ekki aðeins fyrsta flokks ráðgjöf handa viðskiptavinum okkar heldur tryggir það einnig að þjónustan sé eins hagkvæm og kostur er. Þá starfa reyndir málflytjendur fyrir dómsstólum landsins á öllum fagsviðum LEX.
Aðalsteinn Jónasson skipaður dómari við Landsrétt
2. júní, 2017Aðalsteinn Jónasson hrl. LL.M og eigandi að LEX hefur verið skipaður dómari við Landsrétt. Aðalsteinn sem hefur starfað á LEX með hléum frá árinu 1992 er einn mesti sérfræðingur Íslands á sviði fjármagnsmarkaðaréttar. Eftir hann liggja bækurnar Viðskipti með fjármálagerninga sem kom út árið 2009 og Markaðssvik, sem kom út fyrr á þessu ári.
Það er ekkert nýtt að lögmenn frá LEX veljist til mikilvægra starfa í íslensku samfélagi og erum við á LEX gríðarlega stolt af skipun Aðalsteins. Aðalsteinn mun hefja störf við Landsrétt þann 1. janúar n.k., en þangað til mun hann sinna hefðbundnum störfum á LEX.
Aftur í fréttasafn