Fréttir
LEX mun birta hér öðru hverju fréttir af málefnum stofunnar og starfsmönnum hennar, auk auglýsinga um útgáfu efnis frá LEX
Fréttir
ÚTGÁFA
LEX lögmannsstofa leggur áherslu á að viðskiptavinir njóti þjónustu sérhæfðra starfsmanna eftir því sem viðkomandi verkefni kallar á. Slíkt tryggir ekki aðeins fyrsta flokks ráðgjöf handa viðskiptavinum okkar heldur tryggir það einnig að þjónustan sé eins hagkvæm og kostur er. Þá starfa reyndir málflytjendur fyrir dómsstólum landsins á öllum fagsviðum LEX.
Chambers Europe metur LEX lögmannstofu í hæsta gæðaflokki
27. apríl, 2015Chambers Europe gaf í dag út mat sitt á lögmannstofum í Evrópu. LEX er metið í „Band 1“, sem er hæsta mögulega einkunn sem Chambers gefur út. Er LEX því áfram metið í hæsta gæðaflokki íslenskra lögmannstofa hjá öllum helstu matsfyrirtækjum.
Í mati Chambers Europe kemur m.a. fram að LEX lögmannstofa sé þekkt fyrir að veita þjónustu á öllum sviðum lögfræðinnar með framúrskarandi sérfræðinga að öllu leyti á sviði fyrirtækja- og viðskiptalögfræði. Sem dæmi um nýleg verkefni er minnst á yfirtökur fyrirtækja, endurfjármagnanir og ráðgjöf varðandi stjórnarhætti og samkeppnisrétt.
Teymisstjóranum Ólafi Haraldssyni er hrósað fyrir samningatækni. Einn viðskiptavinur segir: „Ég var mjög sáttur við hans aðferð við samningaviðræðurnar. Hann er rólegur og hann undirbýr sína afstöðu mjög vel – röksemdafærsla hans vann í raun vinnuna fyrir hann.“
Garðari Gíslasyni er hrósað fyrir skattaþekkingu og þekkingu á viðskiptalífinu. „Hann hefur djúpa þekkingu á skattamálum. Hann er snöggur til verka og hefur yfirgripsmikla þekkingu á þeim geira sem að við störfum í og þeim áskorunum sem að við mætum “ segir annar viðskiptavinur.
Þeir sem talað er við lýsa Aðalsteini Jónassyni sem „mesta sérfræðingi á sviði banka og fjármagnsréttar – minn fyrsti kostur. Þegar að þú mætir með hann þér við hlið þá veistu að hinir munu hlusta.“
Aftur í fréttasafn