Fréttir
LEX mun birta hér öðru hverju fréttir af málefnum stofunnar og starfsmönnum hennar, auk auglýsinga um útgáfu efnis frá LEX
Fréttir
ÚTGÁFA
LEX lögmannsstofa leggur áherslu á að viðskiptavinir njóti þjónustu sérhæfðra starfsmanna eftir því sem viðkomandi verkefni kallar á. Slíkt tryggir ekki aðeins fyrsta flokks ráðgjöf handa viðskiptavinum okkar heldur tryggir það einnig að þjónustan sé eins hagkvæm og kostur er. Þá starfa reyndir málflytjendur fyrir dómsstólum landsins á öllum fagsviðum LEX.
Smitrakningaröpp og Persónuvernd
24. apríl, 2020Lena Mjöll Markusdóttir skrifar grein á Vísi í dag þar sem hún fjallar um smitrakningaröpp í samhengi við persónuvernd. Slík öpp geta eðli máls samkvæmt falið í sér söfnun og notkun persónuupplýsinga. Þann 19. mars sl. tilkynnti Evrópska persónuverndarráðið að persónuverndarreglur á borð við almennu persónuverndarreglugerð ESB girði ekki fyrir að ráðist sé í slíkar aðgerðir, enda sé það sameiginlegt markmið heimsbyggðarinnar um þessar mundir að stemma stigu við faraldrinum. Engu að síður þurfi á sama tíma að tryggja vernd þeirra persónuupplýsinga sem er safnað í tengslum við slíkar aðgerðir.
Aftur í fréttasafn