Á aðalfundi LEX sem haldinn var föstudaginn 27. mars sl. var samþykkt að þrír nýir hluthafar gengu til liðs við hluthafahóp LEX. LEX kynnir stolt til leiks þau Birgi Má Björnsson, Fanneyju Frímannsdóttur og Láru Herborgu Ólafsdóttur Birgir Már Björnsson er lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi, Landsrétti og Hæstarétti. Birgir hefur starfað á… Read more »
Month: mars 2020
Upplýsingaskylda skráðra félaga á óvissutímum
Stefán Orri Ólafsson, eigandi á LEX skrifaði grein í Markaðinn, fylgiblað Fréttablaðsins í dag þar sem hann fer yfir upplýsingaskyldu skráðra félaga á óvissutímum í tengslum við COVID-19 veiruna.
Persónuvernd leggur á sektir í fyrsta sinn
Erla S. Árnadóttir, eigandi á LEX og fulltrúarnir María Kristjánsdóttir og Lena Markusdóttir rituðu grein í Fréttablaðið í dag þar sem fjallað er um þau tímamót sem urðu þann 10. mars sl. þegar Persónuvernd beitti í fyrsta sinn sektarákvörðunum en slík heimild er eitt af nýmælum í löggjöf um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga sem tók… Read more »
Sjaldan er ein veiran stök
Lára Herborg Ólafsdóttir, lögmaður á LEX fjallaði í viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag um öryggisáskoranir sem atvinnurekendur standa frammi fyrir í tengslum við fjarvinnu starfsmanna í kjölfar samkomubanns vegna Covid19 og hvernig bregðast skuli við komi öryggisbrestur upp.
COVID-19 og réttarreglur um afpöntun vöru og þjónustu
Arnar Þór Stefánsson og Víðir Smári Petersen, eigendur á LEX, fjölluðu um réttarreglur um afpöntun vöru og þjónustu í samhengi við COVID-19 í Fréttablaðinu í dag. Reynir nú á ýmsar reglur laga og réttar sem sjaldan koma til skoðunar. Ber þar hæst reglur sem lúta að því hvað gerist þegar ekki er hægt, eða a.m.k…. Read more »
Leiðarvísir Chambers and Partners um lyfjaauglýsingar á Íslandi 2020
Erla S. Árnadóttir og Hulda Árnadóttir, eigendur á LEX ásamt Maríu Kristjánsdóttur fulltrúa eru höfundar laga- og framkvæmdahluta leiðarvísis Chambers and Partners um lyfjaauglýsingar á Íslandi 2020.
Átakshópur um úrbætur í innviðum
Í kjölfar fárviðris sem gekk yfir Ísland í desember 2019 og olli miklu tjóni skipaði ríkisstjórnin átakshóp um úrbætur í innviðum. Arnar Þór Stefánsson, eigandi á LEX sat í undirhópi átaksins sem skilaði af sér minnisblaði um leiðir til einföldunar og samþættingar ferla vegna framkvæmda við flutningskerfi raforku.
Landsréttur dæmir Orkubúi Vestfjarða í hag
Þann 21. febrúar síðastliðinn kvað Landsréttur upp dóm í máli sem Jónas A. Aðalsteinsson, lögmaður hjá LEX, flutti fyrir hönd Orkubús Vestfjarða ohf. gegn Ísafjarðarbæ. Í málinu krafðist umbjóðandi LEX þess að viðurkennt yrði að allur réttur til virkjunar vatnsafls í Úlfsá í Dagverðardal væri eign Orkubús Vestfjarða, og að samningur milli Ísafjarðarbæjar og AB-fasteigna… Read more »
Recent Comments